Forsíða
Höfundar
Fræðilegur bakgrunnur
Flokkun íslenskra starfslýsinga
Framkvæmd
Bendill-námskeið
Verðskrá
Styrktaraðilar
Spurt og svarað
Athugasemdir
  Styrktaraðilar  
 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bendill var styrktur af markáætlun RANNÍS í upplýsingatækni og umhverfisfræðum, starfsmenntaráði félagsmálaráðuneytisins og í formi aðstöðu frá Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands og Háskólanum í Illinois-CU þar sem höfundar hafa starfað eða eru starfandi.

Margir komu að gerð Bendils á einn eða annan hátt. Vibeke Svala Kristinsdóttir, Steinunn Harpa Jónsdóttir og Björg Sigríður Hermannsdóttir voru starfsmenn verkefnisins í lengri eða skemmri tíma á árunum 2004-2007. Ásdís Schram og Eyrún B. Valsdóttir sáu um gerð atriða þegar verkefnið var á frumstigum og Svala Jónsdóttir lektor við KHÍ hannaði lógo og endanlegt útlit vefs. Leitað var til fagfólks sem starfar við náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands við vinnuna og var aðstoð þeirra og reynsla af notkun áhugakannanna ómetanleg. Náms- og starfsráðgjafar sem starfa í grunn- og framahaldsskólum tóku bæði þátt í mótun Bendils þegar hann var enn á frumstigum og síðast en ekki síst lögðu þau þróunar- og stöðlunarútgáfu könnunarinnar fyrir hátt í 4000 nemendur meðan á verkefninu stóð. Án þátttöku starfandi náms- og starfsráðgjafa og nemenda hefði Bendill aldrei orðið að veruleika. Námsmatsstofnun hefur tekið við Bendli og sér um hýsingu og þjónustu við notendur.

Háskólaútgáfan gefur út handbók fyrir notendur:
Bendill, rafræn áhugakönnunn: Þróun og notkun.
 

 
  Höfundar: © Sif Einarsdóttir (sif@hi.is) og James Rounds | Hönnuður vefs: © Manfred Lemke og Árni Björgvinsson | Grafík: © Svala Jónsdóttir | Síðast breytt 21.06.2011 
  Könnunina má ekki nota eða afrita að hluta eða í heild nema með leyfi höfunda.
  Þjónusta: Námsmatsstofnun