Forsíða
Höfundar
Fræðilegur bakgrunnur
Flokkun íslenskra starfslýsinga
Framkvæmd
Bendill-námskeið
Verðskrá
Styrktaraðilar
Spurt og svarað
Athugasemdir
  Bendill-námskeið  
 

 

 

 

 

 

 

 

 

Markmið
Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að þátttakendur þekki og skilji fræðilegar og hagnýtar forsendur Bendils, kenningalegan bakgrunn, uppbyggingu, þróun og próffræðilega gæði hans. Í öðru lagi að þátttakendur geti lagt Bendil-I og II fyrir og túlkað niðurstöður í hópum eða með einstaklingum á faglegan og siðlegan hátt sem kemur ráðþegum að sem mestu gagni.

Forkröfur og réttindi
Aðeins þeir sem eru með menntun á sviði náms- og starfsráðgjafar eða sambærilega menntun geta sótt námskeiðið og notað Bendil eftir að námskeiði lýkur. Námskeiðið veitir rétt bæði til að nota Bendil-I (10. bekkur) og Bendil-II (framhaldsskólanemar).

Tími
 

Skráning í námskeið
Skráning fer fram í námskeiðið hjá Námsmatsstofnun í Síma 550-2400.

Verð á námskeiði og gögnum

1. Námskeið og handleiðsla á vettvangi                                                     35.000

2. Námskeið (Þeir sem hafa áður fengið þjálfun í og hafa  reynslu af
    notkun Áhugakönnunar Strong eða Í leit að starfi geta sleppt
    handleiðslu á vettvangi)
                                                                       20.000

3. Handbók og önnur gögn                                                                          5000

Námskeiðsgögn

  • Handbók: Sif Einarsdóttir og James Rounds (2007) Bendill, rafræn áhugakönnun: Þróun og notkun, Reykjavík: Háskólaútgáfan.
  • Glærur og leiðbeiningar um notkun
  • Aðgangur að Bendli-I og II fyrir þátttakanda í námskeiði (sent viku fyrir námskeiðsdag)

Námskeiðsgögn, önnur en niðurstöðublöð eigin úrlausna úr Bendli-I og II eru afhent á staðnum en þeir sem þegar eiga bókina þurfa að hafa hana með sér.

Skipulag námskeiðs

 I Fyrirlestrar og verklegar æfingar 

a)      Nemendur taka Bendil-I og II heima áður en námskeið hefst og koma með eigin niðurstöður með sér

b)      Kenningalegur bakgrunnur, uppbygging og gæði Bendils

      Kaffihlé—veitingar í boði

c)      Notkun Bendils- fyrirlögn, túlkun og notkun upplýsingaveitu

d)     Verklegar æfingar og handleiðsla

e)      Umræður og samantekt

II Handleiðsla á vettvangi

Kennari mætir á vinnustað ráðgjafans og fylgist með fyrstu fyrirlögn og túlkun í hóp eða hjá einstaklingi og leiðbeinir. Handleiðsla með kennara getur einnig verið á formi upptöku og skrifleg handleiðsla eða í síma (fyrir þátttakendur sem búa utan höfuðborgarsvæðis).  

 
 
  Höfundar: © Sif Einarsdóttir (sif@hi.is) og James Rounds | Hönnuður vefs: © Manfred Lemke og Árni Björgvinsson | Grafík: © Svala Jónsdóttir | Síðast breytt 21.06.2011 
  Könnunina má ekki nota eða afrita að hluta eða í heild nema með leyfi höfunda.
  Þjónusta: Námsmatsstofnun