Þeir sem falla á þetta áhugasvið hafa gaman af því að leysa vandamál með vísindalegum aðferðum, útreikningum og rannsóknum og beita rökhugsun. Þeir vilja vinna sjálfstætt og í störfum sem krefjast mikillar einbeitingar. Þeir hafa fjölþætt áhugamál og eru gjarnan opnir fyrir nýjum hugmyndum og reynslu.