|
Bendill er samstarfsverkefni
Sifjar Einarsdóttur sem starfar sem dósent í náms- og
starfsráðgjöf við Háskóla Íslands en starfaði við KHÍ þegar
verkefninu var hrundið af stað, James Rounds sem starfar sem
prófessor við University of Illinois, Champaign-Urbana og
Manfred Lemke sem starfaði sem verkefnisstjóri við kennsluþróun
á sviði upplýsingatækni við KHÍ.
Sif Einarsdóttir,
verkefnisstjóri, starfar er höfundur hugmyndar að þessu verkefni
og ábyrgðarmaður. Hún hefur sérmenntun á sviði náms- og
starfsráðgjafar og lauk doktorsprófi á sviði ráðgjafarsálfræði
árið 2001. Flestar rannsóknir Sifjar eru á sviði próffræða og
starfsáhuga. Hún hefur bæði stundað grunnrannsóknir á
próffræðilegum eiginleikum áhugakannana og rannsóknir sem
beinast að þvermenningarlegu gildi slíkra kannana hérlendis. Hún
er reyndur rannsakandi og hefur birt greinar á þessu sviði og
öðrum í viðurkenndum fagtímaritum
James Rounds, sérfræðingur
er prófessor í ráðgjafarsálfræði (counseling psychology). Hann
er einn fremsti fræðimaður á sviði náms- og starfsráðgjafar í
Bandaríkjunum. Rannsóknir hans á formgerð starfsáhuga hafa vakið
mikla athygli og hefur hann hlotið ýmis verðlaun og
viðurkenningar fyrir þær. Hann hefur stundað rannsóknir á
starfsáhuga og tengdum sviðum í hátt á þriðja áratug. Hann tók
þátt í O*NET verkefni Bandarísku vinnumálastofnunarinnar. Þar sá
hann um hönnun áhugakannana og upplýsingakerfis um störf fyrir
kerfið sem notað verður að nokkru leyti sem fyrirmynd að þessu
verkefni (sjá feril). Verkefni þetta gefur m.a. tækifæri til
rannsókna á þvermenningarlegu gildi matstækja og áhrif
félagslegra og menningarlegra þátta á þróun starfsáhuga. Þekking
og reynsla James Rounds á sviði rannsóknarverkefnisins er
ómetanleg fyrir þróun íslenskrar áhugakönnunar.
Manfred Lemke, vefstjóri
hefur mikla reynslu bæði á sviði upplýsingtækni og fræðslumála.
Hann hefur gegnt lykilhlutverki í þróun kennslutækja á vefrænu
formi, vefsíðna og matstækja ýmiskonar við KHÍ. Hann sá um þann
hluta verkefnisins sem snýr að upplýsingatæknihlið
áhugakönnunarinnar, hann hefur hannað það viðmót sem snýr að
notendum og gera könnuna aðgengilega á netinu. Manfred hefur
unnið að gerð kannanna ýmiskonar við KHÍ, og skyldum verkefnum
og hefur hann mikla reynslu af forritun af þessu tagi og um leið
góða þekkingu á þeim nemendum sem kerfið munu nota.
|