|
|
Bendill-II samanstendur af 143 athöfnum tengdum störfum og 100
starfsheitum. Nemendur svara hversu vel eða illa þeim líka
athafnirnar og störfin. Niðurstöður eru skipulagðar samkvæmt
kenningu Hollands og fær hver nemandi upplýsingar um áhuga sinn
á sex áhugasviðum sem sett voru fram af Holland (handverks-
vísinda, lista- félags- athafna- og skipulagssvið eða HVLFAS) og
28 undirsviðum um leið og hann eða hún hafa lokið við að svara
könnuninni. Niðurstöður birtast myndrætt í samþættum
áhugasviðshring þar sem hægt er að sjá tengsl HVLFAS sviðanna
sex við undirsviðin (sjá dæmi um niðurstöðublað). Það tekur
nemendur aðeins um 15-20 mínutur að svara könnuninni.

|