|
|
Bendill-I
samanstendur af 57 athöfnum tengdum störfum og 57 námsgreinum úr
framhaldsskólanum. Nemendur svara hversu vel eða illa þeim líka
athafnirnar og námsgreinarnar. Niðurstöður eru skipulagðar
samkvæmt kenningu Hollands og fær hver nemandi upplýsingar um
áhuga sinn á sex áhugasviðum sem sett voru fram af Holland
(handverks- vísinda, lista- félags- athafna- og skipulagssvið
eða HVLFAS) um leið og hann eða hún hafa lokið við að svara
könnuninni. Einnig birtast upplýsingar um hvaða námsbrautir sem
í boði eru í framhaldsskólunum flokkast undir hvert
áhugasviðanna sex (sjá dæmi um niðurstöðublað). Það tekur
nemendur aðeins um 10-12 mínútur að svara könnuninni.

|