Undirkvarðar í Bendli III

 

Björgun og löggæsla

Atriði sem tengjast löggæslu annars vegar og björgunarstörfum hins vegar mynduðu nokkuð skýran

klasa s.s. aðstoða fólk í sjávarháska, handtaka fólk grunað um glæp, slökkviliðsmaður. Þeir sem eru

háir á þessu sviði hafa áhuga á að vinna við almenna löggæslu og eftirlit, rannsóknir á sakamálum og

björgunarstörf ýmiss konar sem oftast eru unnin í sjálfboðavinnu hérlendis en teljast ekki til

hefðbundinna launaðra starfsstétta.

 

Félags- og menntavísindi

Þessi kvarði hefur tekið breytingum í Bendil III frá því sem var í Bendli II þar sem hann innihélt einungis

atriði sem lýsa áhuga á félagsvísindum. Atriði sem tengjast menntun sem fræðigrein bættust við hjá

háskólanemum. Þetta svið lýsir áhuga á fræðastörfum og gerir kröfu um áhua á sviði ritunar og greiningar

en viðfangsefnið afmarkar sviðið við samfélagsleg málefni og menntun. Þessi kvarði inniheldur athafnir

og störf s.s. gera rannsóknir á högum nýbúa, túlka og skýra niðurstöður skoðanakannana, tómstunda- og

félagsmálafræðingur, móta og þróa stefnu í skóla- og menntamálum.

 

Fjármál

Kvarðinn samanstendur af athöfnum og störfum sem eru bæði gamalgróin og tilheyra vaxandi sviði í

viðskiptageiranum hérlendis. Því inniheldur kvarðinn atriði eins og endurskoðandi, gjaldkeri á

skrifstofu og gera fjárhagsáætlanir fyrir fyrirtæki. Þeir sem falla á þetta svið geta þrifist á nokkuð

breiðum vettvangi og fundið störf víða, bæði í viðskiptalífinu og fjarmálageiranum auk opinbera

geirans sem sinnir fjársýslu af ýmsu tagi.

 

Fjölmiðlar

Það var nokkuð skýrt í klasagreiningunni að atriði sem tengjast fjölmiðlun á ýmsan hátt röðuðu sér

nokkuð þétt saman og mynduðu sérklasa. Þau voru því tekin saman í kvarða sem ekki hefur áður komið

fram. Hann inniheldur atriði eins og skrifa fréttir fyrir dagblöð, sjá um hljóðupptökur í útvarpi,

sjónvarpi eða kvikmynd, plötusnúður. Þeir sem eru háir á þessu sviði gætu bæði haft áhuga á að búa til

efni fyrir fjölmiðla og sjá um tæknilegan þátt útsendinga og upptöku.Hannyrðir og hönnun

Þessi kvarði er nýr en byggir að einhverju leyti á sömu atriðum og voru í kvarða sem heitir tíska og

hönnun í Bendli II. Þetta er þó mun einsleitari kvarði sem endurspeglar áhuga á hagnýtri hönnun og

hannyrðum sem sumar hverjar eru rótgrónar í íslenskri menningu og handverki. Kvarðinn samanstendur

af atriðum s.s. hanna myndir eða mynstur á föt, blómaskreytingarmaður, handmenntakennari.

 

Heilbrigðisþjónusta

Annað svið sem fellur undir þjónustugeirana eru heilbrigðismál. Þar sem um nokkuð víðtækt svið er að

ræða var þessum flokki skipt í tvennt, annars vegar fræðilega hlutann sem lýst er hér að neðan

(heilbrigðis- og lífvísindi) og hins vegar þann þátt sem snýr mest að þeim er þiggja þjónustuna. Þessi

kvarði inniheldur athafnir og störf s.s. aðstoða tannlækni við tannviðgerðir, veita upplýsingar og

ráðleggingar um lyf, sjúkraliði, læknir. Þeir sem falla á þetta svið hafa áhuga á að starfa á mjög svo

víðfeðmu sviði heilbrigðismála sem felur í sér störf sem krefjast bæði styttri og lengri menntunar.

 

Heilbrigðis- og lífvísindi

Þessi kvarði inniheldur athafnir og störf sem tengjast rannsóknum og hagnýtingu á heilbrigðissviði og

á sviði lífvísinda sem hefur verið vaxandi fræðigrein undanfarin ár. Dæmi um atriði sem kvarðinn

inniheldur eru: Gera erfðafræðilegar rannsóknir á sjúkdómum, rannsaka plöntur, dýr eða frumur í

smásjá, lyfjafræðingur.

 

Hugvísindi

Þessi kvarði inniheldur athafnir og störf s.s. greina merkingu skáldsagna og annarra bókmennta, kenna

erlend tungumál í framhaldsskóla, íslenskufræðingur, sagnfræðingur. Þessar greinar tilheyra

hugvísindum eins og þau eru skilgreind í háskólasamfélaginu að mestu leyti. Þær eiga það sammerkt

að vera grundaðar í tungumálinu og fjalla um þau svið mannlegrar tilveru sem tilheyra t.d. heimspeki,

sagnfræði og bókmenntafræðum ásamt fleiri skyldum greinum.

Íþróttir og heilsa

Þessi kvarði er nokkuð nýr af nálinni, hann inniheldur atriði eins og kenna íþróttir í skóla, veita fólki

ráðgjöf um mataræði, og leiðbeinandi í heilsurækt. Þetta eru athafnir og störf sem finna má nokkuð

víða í samfélaginu en tengjast öll líkamsástandi eða iðkun heilbrigðra lífshátta og heilsuræktar. Áhugi

þeirra sem falla á þetta svið beinist að störfum sem víða er að finna í okkar samfélagi og verða æ

fjölbreyttari og umfangsmeiri.

 

Kennsla

Atriði sem snúa að uppeldi og leiðsögn barna og unglinga myndaði mjög skýran klasa. Þetta eru

athafnir eins og kenna grunnskólabörnum, leiðbeina börnum og unglingum við tómstundastarf og

þroskaþjálfi. Þeir sem eru háir á þessu sviði hafa áhuga á að starfa með börnum og unglingum á

fjölbreyttum starfsvettvangi, störfum sem fer sífellt fjölgandi í nútímasamfélagi.

 

Lög

Þessi kvarði er líklega sá einsleitasti sem fram hefur komið í Bendli. Hann inniheldur einungis atriði

sem snýa að lögfræðistörfum s.s. vinna að lögfræðilegum álitsgerðum, héraðsdómari og veita

fyrirtækjum ráðgjöf um lögfræðileg vandamál. Atriðum í þessum flokki var fjölgað í Bendli III enda

um mun breiðari starfsvettvang fyrir lögfræðinga að ræða nú en áður í íslensku samfélagi

 

Mannauðsstjórnun

Þetta er annar nýr kvarði sem varð til þegar kvarði sem innihélt m.a. lagatengd störf og fékk nafnið

opinber stjórnsýsla í Bendli II skiptist upp í lög, mannauðsstjórnun og stjórnmál. Hann samanstendur

af atriðum s.s. móta og framkvæma starfsmannastefnu innan fyrirtækja. Þjálfa stjórnendur fyrirtækja/

stofnana í samskiptum, atvinnumálaráðgjafi. Kvarðinn endurspeglar áhuga á að vinna með fólki,

stjórna og þróa starfsumhverfi og fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum.

 

Náttúruvísindi

Kvarðinn samanstendur af störfum og athöfnum sem tengjast rannsóknum á náttúrunni í víðum

skilningi s.s. gera veðurathuganir og veðurspár, jarðfræðingur og skoða eiginleika frumeinda. Hann

endurspeglar áhuga á að starfa við rannsóknir, fræðistörf og hagnýtingu þekkingar á sviði náttúrufræða

og svokallaðra raunvísinda fyrst og fremst.

 

Persónuleg þjónusta

Þessi kvarði er nýr og inniheldur atriði sem tengjast störfum sem fela í sér aðstoð fólk við ýmis hagnýt úrlausaratriði.  Hann inniheldur störf eins og flugreyja, móttökuritari og snyrtifræðingur sem ná yfir nokkuð vítt svið en skera sig frá almennri afgreiðslu þar sem huga þarf betur að þörfum og liðan.

 

Ráðgjöf og meðferð

Þessi kvarði er gamalkunnur og endurspeglar áhuga einstaklinga á að vinna með fólki og aðstoða við

persónuleg og félagsleg vandamál. Hann samanstendur af athöfnum og störfum eins og aðstoða fólk

sem býr við félagslega vandamál, aðstoða nemendur við náms- og starfsval, sálfræðingur. Þetta er svið

sem krefst nokkurrar menntunar og tengist töluvert félagsvísindum og einnig heilbrigðisþjónustu að

nokkru leyti.

 

Ræktun og búskapur

Þessi kvarði samanstendur af athöfnum og störfum á sviði landbúnaðar, garðyrkju og gróðurræktar

fyrst og fremst. Hann inniheldur m.a. atriði eins og rækta plöntur og gróðursetja tré, sjá um kýr kindur

eða hesta og bóndi. Þeir sem hafa áhuga á störfum á þessu sviði una sér best úti í náttúrinni við nytjun

hennar eða fegrun.

 

Sala

Þau atriði sem tengjast viðskiptum almennt mynduðu nokkuð þéttan klasa en þegar nánar var að gætt

kom í ljós að hægt var að greina nokkra undirþætti á þessu sviði. Kvarðinn sala er einn þessara þátta,

hann inniheldur atriði sem lýsa störfum þeirra sem fást við að fá neytendur til að kaupa vöru og þjónustu

á ýmsum sviðum s.s. sýna fólki og selja íbúðarhúsnæði, afgreiðslumaður í verslun, selja tryggingar.

 

Sjónlistir

Þessi kvarði samanstendur af athöfnum og störfum s.s. hanna auglýsingar og skilti, hanna íbúðarhús

og teikna upp, ljósmyndari, iðnhönnuður, sem spanna nokkuð vítt svið í listageiranum. Þeir sem eru

háir á þessu sviði hafa áhuga á að vinna við sköpun myndverka eða hönnun hluta fyrst og fremst.

 

Skapandi skrif

Þetta er kvarði sem vísir fannst að í klasagreiningu í þróunarúrtaki, en hann innihélt aðeins örfá atriði.

Það renndi frekar stoðum undir mikilvægi þess að þróa slíkan kvarða því hann hafði komið fram í

erlendum rannsóknum. Því var bætt við atriðum í stöðlunarúrtaki og búinn til kvarði sem endurspeglar

áhuga fólks á því að vinna með og tjá sig í rituðu máli. Hann inniheldur til dæmis eftirfarandi atriði og

störf: skrifa fréttir fyrir dagblöð, þýða texta og eða skjöl á íslensku eða erlend mál og rithöfundur.

 

Skrifstofustörf

Þetta er vel þekktur kvarði úr erlendum rannsóknum sem inniheldur störf eins og ritari framkvæmdastjóra,

símvörður og athafnir eins og taka við og skrá greiðslur viðskiptavina í tölvu, skrifa og setja upp bréf

í tölvu. Þessi störf fela í sér pappírsvinnu, flokkun, skráningu og ritun ásamt móttöku og upplýsingagjöf

hjá stofnunum og fyrirtækjum á flestum sviðum.

 

Stjórnmál

Háskólanemar virðast greina mun ítarlegar á milli skyldra starfa en yngri nemendur. Þessi kvarði sem

inniheldur atriði s.s. alþingismaður, stjórnmálafræðingur og formaður hagsmunasamtaka sem áður

voru hluti af kvarðanum opinberri stjórnsýslu í Bendli II er mjög einsleitur. Hann endurspeglar áhuga

á að taka þátt í samfélagslegri stjórnun og stefnumótun.

 

Stærðfræði

Atriði sem beinast að því að beita stærðfræði og útreikningum fræðilega og við úrlausn hagnýtra

verkefna s.s. setja jöfnu upp í myndriti, tölfræðingur mynduðu nokkuð afgerandi klasa. Þessi kvarði

lýsir áhuga á að starfa við stærðfræðileg viðfangsefni og lausn þeirra á ýmsum sviðum þar sem þess

gerist þörf.

 

Sviðlistir

Athafnir og störf sem falla undir þær listgreinar sem kalla á að listamaðurinn stígi á svið voru teknar

saman í einn kvarða. Þar er að finna athafnir og störf eins og syngja í hljómsveit eða kór, tónlistarkennari,

leikari. Þetta svið nær yfir tónlist, leiklist og dans, þannig að þeir sem eru háir á þessum kvarða hafa

yfirleitt hug á að starfa eða taka þátt í sýningum sem fela annaðhvort eða bæði í sér leikræna tjáningu

og tónlistarflutning.

 

Tölvur

Tölvutengdar athafnir og störf mynduðu mjög skýran klasa í frumgreiningu á atriðunum. Þessi kvarði

inniheldur atriði s.s. setja upp og tengja tölvubúnað, aðstoða fólk við að leysa úr tölvuvanda, hanna og

setja upp vefsíður og tölvunarfræðingur. Þessar athafnir endurspegla bæði áhuga á að vinna við

tölvubúnað, hönnun í tölvum, forritun og fræðilega nálgun að tölvutækninni og notkun hennar.

 

Verk- og tæknifræði

Valin voru saman athafnir og störf s.s. hanna og teikna rafeindabúnað fyrir tölvur, meta og reikna

burðarþol húsa, vélaverkfræðingur sem eiga það sameiginlegt að fela í sér störf sem falla undir verkog

tæknifræði. Þeir sem hafa áhuga á þessu sviði starfa í ýmsum geirum s.s. bygginga-, véla- eða

rafmagns-/einda- þar sem hagnýta þarf þekkingu á tækni- og verkfræðum.

 

Viðhald og smíðar

Þetta er nýr kvarði sem tekur við af eignaumsjón í Bendli II, hann inniheldur atriði sem snúa að

smíðum, viðhaldi og umsjón húsnæðis t.d. er húsvarðarstarfið í þessum kvaðra. Hér er um fínlegri

vinnu að ræða en í flestum byggingagreinum s.s. smíða húsgögn, mála að innan og utan sem að fólk

sinnir jafnvel einnig í tómstundum.

 

Viðskipti og rekstur

Athafnir og störf sem tengjast viðskiptum og rekstri fyrirtækja mynduðu nokkuð skýran klasa. Þessi

kvarði inniheldur atriði eins og stjórna og reka eigið fyrirtæki, stjórna banka eða sparistjóði,

markaðsstjóri. Ef einstaklingur er hár á þessum kvarða lýsir það áhuga á að hafa frumkvæði og bera

ábyrgð á rekstri fyrirtækis og starfa sem athafnamaður eða -kona í viðskiptalífinu.